16.maí 2007
Svo fórum við á hestbak og svona og það er alltaf jafn gaman. Ekki lætur maður fréttir um aukna mænuskaða stoppa sig, því slysin gera ekki boð á undan sér og geta gerst við hvaða aðstæður sem er. Ég hef hingað til ekki verið lífhrædd og tek því sem að höndum ber í öllum heimsins málum!
Frí á morgun og yndisleg fjölskylda okkar kemur LOKSINS í mat ! Ekki verður sumarveðrinu fyrir að fara, en kannski getum við grillað í skjóli hérna uppi! Kemur í ljós!
Vorferðin á föstudaginn og allt klárt..
Svo er frændi hans Krissa væntanlegur og ætlar að taka Höð og járna hann amk fyrir okkur, eitthvað voða spes og við ætlum að ríða út saman..gott að fara með vönu fólki og fá leiðbeiningar, annars erum við orðin svaka sjóuð í þessu! Kólga fer svo austur í byrjun júní og Vinur og Höður fara svo um miðjan ágúst og koma aftur fyrir jól:) Nú vantar okkur bara að finna góðan haga hérna í sveitinni frá júní og fram í ágúst..svo ef ykkur langar að hafa hesta í garðinum ykkar þá endilega látið okkur vita:)
Nú er ég í átaki að fá mér morgunmat á hverjum morgni. Er ekki að ganga sérstaklega vel. Voðalega uppiskroppa með hugmyndir svo endilega segið mér ...Cheerios, Corn Flakes...ohh mig langar bara í TRIX!!!
Góða helgi og kannski verður næsta blogg innihaldsríkara en þetta:)
Settu X á réttan stað...

Er eitthvað sem er réttara en annað í þessum kosningum þetta árið? Margir lofa öllu fögru eins og svo hundrað sinnum hefur gerst áður svona rétt fyrir kosningar. Aldrei hef ég nú haft mikinn áhuga á kosningum og svona látið þetta fara inn um annað og út um hitt því ég nenni ekki að hlusta á þetta oft á tíðum rugl. En nú er ég orðin fullorðin og verð að kjósa þann sem mér þykir bestur og ég er eiginlega alveg búin að ákveða það. En þið ? Svo finnst mér svo fyndið hvernig fólk getur látið í kringum kosningar og tekið þetta persónulega og nærri sér. Ok ég er ekkert að auglýsa það hvað ég kýs..en fólk á bara að vera stolt af því sem það kýs og standa og falla með því ekki satt...en allavega hér kemur smásaga:)
Ung kona situr við fínt borðhald á veitingastað. Þessi kona er virkur meðlimur í virkum og stórum rauðum stjórnmálaflokki hér á landi. Sessunautur hennar veit ekki að hún er meðlimur í þessum tiltekna flokki hvað þá að konan sé í framboði. Maðurinn fer að spjalla við konuna og allt er í góðum gír. Það kemur til tals við borðið að konan sé í framboði og sessunauturinn spyr fyrir hvaða flokk..konan svarar nú auðvitað dadada! Maðurinn lokar á sér þverrifunni og segir ekki stakt orð við konuna það sem eftir lifir kvölds! Mér finnst þetta ógeðslega fyndið! Bara hættur að tala við hana af því að hún tilheyrir öðrum flokki en hann sjálfur kýs! Við erum öll mannverur og öll búum við á þessu landi..á meðan þetta er svona þá er nú dálítill spotti eftir að við lifum hér í sátt og samlyndi..hvað varð um Dýrin í Hálsaskógi?? Allir vinir!
Þetta var sanna smásaga kvöldsins:)
Á morgun fáum við gesti sem ætla að gista í nokkra daga og við verðum mikið á hestbaki því þetta fólk eru miklir og góðir hestamenn og eru að fara á dómaranámskeið hér í bænum. Það verður fínt að fá smá kennslu!
Eiki tekur Euro á fimmtudaginn! Á laugardaginn fer maður svo og setur kross við sinn stað hver sem hann verður og svo verður farið í 60 ára afmæli, kíkt á eurovision og svo í smá innflutningspartý til Dísu skvísu. Næsta vika er þéttsetin líka, þá er saumó á mánudaginn, og svo vorferð í vinnunni(sem ég var með í að plana) á föstudaginn:) Hlakka miiikið til:)
Þetta er nú það helsta og ég er með hausverk..best að nýta mér punktaþrýsting sem ég lærði af góðri konu í dag...það virkar...meira um það síðar.
* Rakst á þetta: www.xhvad.bifrost.is HVET alla til að prófa! Ég var samkvæm sjálfri mér og kom svona út: Stuðningur við Sjálfstæðisflokk: 12.5%
Stuðningur við Framsóknarflokk: 40%
Stuðningur við Samfylkinguna: 37.5%
Stuðningur við Vinstri-Græna: 68.75%
Stuðningur við Frjálslynda flokkinn: 47%
Stuðningur við Íslandshreyfinguna: 30%
Hvað svo sem ég kýs svo á endanum!
Dalandi vinsældir Hagkaupa??
En fólkið í Smáralind var bara í góðum gír, ekkert stress, enginn að missa sig! Kíktum í Hagkaup og vá, það var bara ekkert að gera þar svona á föstudagseftirmiðdegi! Er það ekki undarlegt? Reyndar fannst mér það ekkert undarlegt þegar ég fór að setja í körfuna, maður verður svei mér þá bara nískur þarna inni! En samt missti ég mig nú aðeins í að vera stödd í annarri búð en Bónus og keypti t.d. Tomma og Jenna íspinna, popp, bland í poka, Ginger Ale, Grape Fruit gosið frá Egils, LGG jógúrt(það fæst ALDREI í Bónus) og eitthvað annað jógurt frá Mjólku sem heitir því þjála nafni Jó! Gaman að kaupa bara svona óhollustu og sonna..hvað ætli mamma hafi haldið um dóttur sína??? hahahahaha...nei ég fór bara að pæla í þessu því Hagkaup var mál málanna hér á árum áður og við mamma fórum ferðir í Skeifuna í Hagkaup að versla oftar en einu sinni! Var svona dýrt þá í Hagkaup?? Ég bara man það ekki..horfði minnst á verðmiðana í þá daga og þó voru þeir nú appelsínugulir með svörtum tölum ! Hugsa sér að handverðmerkja þetta allt!
Hestamennskan blómstrar líkt og vanalega en ég hef ákveðið að "leggja Vin á hilluna", eða leyfa Krissa mínum að sjá alfarið um hann það sem eftir er af "seasoninu". Ég vil heldur ekki vera að skemma hann eitthvað, hann má ekki við svona uppákomum eins og við erum búin að vera að lenda í svo ég bara segi pass á hann þangað til næsta season:) Ég má heldur ekki við því að "detta" meira vegna skrokksins! Alveg nóg að vera lurkum lamin í liðum hér og þar! Ég er búin að fara nokkra góða túra á henni Kólgu hennar Beggu og við erum orðnar þrælgóðar og gefum þessum körlum þarna uppfrá ekkert eftir! Hvað er yndislegra en að ríða út í góðu föruneyti og vaða yfir ár, stökkva upp brekkur, tölta niður brekkur og horfa svo á lóuna, endurnar, tjaldurinn og öll hin dýrin vera í vorhug og syngja fyrir mann allan hringinn! Ekkert er yndislegra:)
Var að sjá viðtal við Ellý Ármanns, hún fær 10þús heimsóknir á dag, skrifar einhverjar smásögur...en fyndið samt, mér finnst hún endalaust búin að vera ófrísk! Eða er tíminn bara svona lengi að líða!
að lokum, Iðunn Silfa orðin 10 ára í dag og afmæli á Skaga á sunnudaginn. Anna systir er "töskuteppt" í Bretlandi, töskurnar skiluðu sér ekki úr fraktinni þarna á STansted svo þær urðu að vera eina nótt enn, misstu af vélinni heim...svo Nesi kallinn vippaði bara einu stelpuafmæli fram úr erminni! Svona á að gera þetta!
Jæja..ég var búin að lofa sjálfri mér því að ryksuga íbúðina og gera kósý áður en kallinn kæmi heim úr hesthúsinu, ég hreinlega meikaði ekki að fara, enda langatöng á stærð við stórutá! Á breidd sko ef þið skiljið:)
Njótið lífsins, strjúkið kviðinn og elskið friðinn!
Síðasti dagur aprílmánaðar 2007
Þeir sem sáu Kompás í gær fylltust ábyggilega jafnmikilli viðurstyggð og ég. Hér má sjá spjall á vef Hestafrétta þar sem þetta er rætt og maðurinn nafngreindur: http://hestafrettir.is/spjall.asp?Sid_NR=534&E_NR=507&VS=1Template1.asp&VT=4
Þáttinn má svo sjá hér: http://www.hestafrettir.is/VefTv/default.asp?MovieID=286&CategoryID=8
Maðurinn sem um ræðir kvaðst hafa verið að ná kergjunni úr þessum 12 vetra barnahesti. Mér er mjög illa við að sjá svona meðferð á hvaða dýri sem er og ég fékk alveg í hjartað við að sjá þetta og vil ekki sjá þetta aftur. Á slúðurvef 847.is er verið að segja að þekktur landsliðsmaður hafi gert þetta og :
Ég veit alveg að í "gamladaga" var pískurinn notaður óspart til að lemja hrossin áfram og ég sjálf hélt alltaf að það væru ótemjur og óþekkir hestar sem maður þyrfti að nota písk á. Ég vissi ekki fyrr en ég byrjaði sjálf í hestamennsku hvernig pískurinn er í raun notaður. Okkar hestar eru t.d. þjálfaðir með písk, þeir fara áfram, til hliðar, bakka og ýmislegt fleira þegar maður pikkar písknum LAUST á réttan stað til þess að fá þá til að gera vissa hluti. Einnig eru þeir vanir að láta strjúka sér með písknum, þannig hafa þeir vanist honum frá upphafi tamningar. Pískur er notaður hamlandi og hvetjandi, en ALDREI sem barefli á dýrin. Ég vona svo sannarlega að þetta hafi vakið þá sem skeyta skapi sínu á blessuð dýrin til umhugsunar.
En þið sem hafið áhuga á þessu þá er forvitnilegt að lesa þessa spjallþræði varðandi þetta mál.
Meira af hestamennsku. Kella flaug af baki í gær og meiddi sig bara ponsu pínu..hefði getað farið miklu verr. Hestarnir fældust við alla bílana á Þingvallaveginum og það er saga sem ég verð að segja því ég fékk gersamlega nóg af íslenskum ökumönnum!
Það var þannig að við riðum bara niður afleggjarann og allt gekk vel. Ætluðum svo yfir Þingvallaveginn í Dalnum og svo afleggjarann að Mosfellskirkju og ríða niður með á. Nú, það fór svo að ég fór á undan yfir veginn og Vinur æstist allur upp og hljóp af stað og ég réð ekki við hann. Höður æstist þá líka upp og hljóp meðfram Þingvallaveginum. Ég gat stoppað Vin af þarna í skoti og fylgdist með hvar Krissi var á harðaspretti meðfram veginum, og umferðin mikil og ENGINN hægði á sér. Þegar Krissi gaf einum ökumanni merki um að hægja á sér, þá flautaði ökumaðurinn á hann og gaf honum fokkmerki og brunaði framhjá honum ..sló ekkert af þó hann hafi vel séð að maðurinn á hestinum var í vandræðum. Ég ákvað að fara bara heim aftur þar sem ég vissi ekki hvenær eða hvort Krissi kæmi til baka og það var mjög hvasst svo ég ákvað að ríða bara heim. Minn var mjög spenntur og órólegur, og um leið og við lögðum af stað heim, hljóp hann af stað og vildi sko alls ekki hlýða stelpunni, sem verður að vera aðeins ákveðnari við hestinn sinn! Ég varð rosalega hrædd, ég viðurkenni það alveg, því við stefndum bara út á veg, þar var bíll sem stoppaði og ég þakka mínum sæla fyrir það..amk sýndi hann tillitssemi í minn garð! Svo rétt náðum við yfir veginn og að afleggjaranum heim á Æsustaði, í beygjunni missti ég ístaðið og þar með var balasinn farinn..skrýtið með mig, ég missi alltaf balansinn um leið og ístaðið er farið! Kannski það sé eðlilegt! ég skall á malbikið og Vinur greyið steig á löppina á mér svo ég uppskar bólgu og eymsli..en ekkert brot sem betur fer og ég er á því að hjálmurinn bjargaði hausnum á mér því ég skall með hann í jörðina líka! EEEn hann stoppaði blessaður og einn maður náði að halda í hann þangað til ég kom labbandi, svo labbaði ég stuttan spotta, ætlaði ekki á bak aftur þennan dag, fyrr en Unnur á Æsó kom keyrandi og skipaði mér á bak og við riðum heim..það gekk vel en hann stökk alla brekkuna án þess að blása úr nös, en það var bara gaman því þá stjórnaði ég og var ekki hrædd eins og þarna áður.
Þá hef ég dottið 5 sinnum af hestbaki og vona að það verði ekki fleiri skipti! En alltaf lærir maður og ég veit að ég þarf að æfa mig að ríða meira út og allt það, þessi hestur er aðeins of öflugur fyrir mig en ég gefst ekki upp og ég veit að við verðum þrusugóð saman næsta vetur:)
FALL ER FARARHEILL !
Hlín-og Árnadóttir fædd!
Annars hef ég verið frekar löt undanfarið, fór þó í góðan reiðtúr í gær og stefni að því að fara í annan í dag. Vinur og ég erum orðin þrusupar og verðum orðin enn betri þegar að sumarbeit kemur. Nú er grasið farið að grænka og þeir félagarnir fengu aðeins að bíta í það litla græna sem komið er á túnið á Æsó:)
Hvað ætlar fólk að kjósa? Ég er ekki búin að ákveða mig og efast um að ég geri það nokkuð fyrr en í kjörklefann kemur. Finnst svo óttalega lítið lýðræði hér í þessu landi og allir lofa fögru og allt það korter í kosningar...jú við búum við kaupmátt og erum rík þjóð og allt það..en er gott að búa hér? Mér finnst bara alltof margir berjast í bökkum, lifa fyrir steinsteypuna, gleyma að huga að sér sjálfum og fjölskyldunni og brenna út á hraða samfélagsins. Ég vísa í fyrri umræðu mína um góðu DK:) Þess vegna er ég eiginlega alveg hætt við að fá mér jeppa og ætla bara að njóta þess að vera á mínum fína dísel bíl og fara vel með umhverfið:) Ég þarf ekki jeppa...ekki strax allavega:) Er maður ekki að safna fyrir öllu mögulegu í einu??
Ég er meira að segja orðin svo nýtin að ég er að draga föt út úr skápnum sem ég fjárfesti í úti á Tyrklandi og hef ekki notað enn að ráði..svo nú er kominn tími til að nota þessa blessuðu dísel fake boli! Og Glasgow fötin...margir spyrja hvort ég sé í einhverju nýju þegar ég dreg þau fram! Svona á að vera nýtinn! Ekki láta fötin hanga með verðmiðunum á inni í skáp! Þá kemur bara skápalykt af þeim!
Undarlegur dagur
Helgin framundan og kallinn í fríi! Verst hvað þessar helgar líða alltaf hratt og maður nær aldrei að gera allt það sem maður ætlaði sér sko aldeilis að gera!
Ég er t.d. EKKI búin að koma fræjunum niður, ÆTLA mér að gera það í fyrramálið ! Er allavega með allt klárt svo það ætti ekki að taka það langan tíma.
Nú sér maður ekkert nema auglýsingar um sól, sjó og heitt og gott loft og ég vona svo sannarlega að sumarið verði okkur gott hérna á klakanum. Sumar og vetur frusu saman svo vonandi stenst það.
Borgin brann og ég vona að húsin verði endurbyggð í þeim stíl sem þau voru..við eigum nú ekki það mikið af gömlum húsum eftir í þessari blessuðu borg. Finnst alveg að það mætti taka til hendinni þarna í miðbænum, það vantar eitthvað þarna..allavega finnst mér það en ég veit ekki hvað það ætti að vera !
Sumardagurinn fyrsti var í gær og ég fékk enga sumargjöf eins og þegar ég var barn! Reyndar fórum við með mor og far og Emmu í Hlégarð þar sem Lions-menn voru með morgunverðarhlaðborð í tilefni sumars, ekkert smá gott að byrja daginn á því að fylla magann! Svo var lagt sig og dúllast hér heima meðan Krissi fór að aðstoða við að járna Höður. Um 16 skellti kerling sér á bak og það var yndislegt að vera úti í góða veðrinu, þó smá kalt, sólinni og með fuglasönginn í beinni! Verst að kuldinn hafði ekki góð áhrif á frunsu frænku svo hún blómstraði.
Ég þakka Sólu og Söndru fyrir sumaróskirnar í kommentum...helgin komin, ég ætla að hafa það gott, fara á hestbak, heimsækja Hlínsu og knúsa kallinn og dýrabörnin...
God Weekend....
Ræktun

Fór um daginn í Garðheima og missti mig í fræjunum. Á reyndar eftir að sá og VERÐ að fara að gefa mér tíma í það! Það verður spennandi að sjá hvort svona falleg Dalía komi upp í sumar! Svo gaf amma Ásta mér dýrindis blómafræ líka sem ég vona að mér takist að koma upp. Plús allar kryddjurtirnar sem munu blómstra í eldhúsglugganum:)
Sumardagurinn fyrsti á morgun...19.apríl..þá opnar formlega nýja sundlaugin í Mosó..ég segi að hún muni heita Lágafellsslaug, mér finnst það liggja beinast við og passa afar vel. Hlakka til að fara í hana, er búin að vera á leiðinni svolítið lengi!
Það besta sem ég veit þessa dagana er að fara í reiðtúr með my beloved og mínum elskulegu hrossum í góðu veðri í dalnum, hlusta á fuglasönginn og vera úti í guðs..bráðum..grænni náttúrunni og njóta útiverunnar! Hef akkúrat ekkert mætt í leikfimina þar sem mér finnst ég bara hreinlega ekki hafa haft tíma til þess! Það er ekki hægt að gera allt og vera allsstaðar þó maður feginn vildi. En maður reynir sitt besta.
Hér er svo þjóðarblómið okkar:

Aftur komið frí!
Vegna FJÖLDA áskorana ætla ég að hripa niður nokkur orð!
Páskarnir búnir og þar með páskafríið. Það var í einu orði sagt yndislegtJ Ma og pa fóru norður svo við vorum “ein” í húsinu. Vorum rosalega dugleg að ríða út, moka, kemba og þar fram eftir götunum.
Á föstudaginn langa komu Erna og Hrólfur í óvæntan mat sem var bara fínn kjúlli og svo var horft á Jógvan vinna X-factorinn.
Á laugardeginum var brunað austur í Austurkot og Höður sóttur, hann var búinn að vera þar í 2 vikna “auka” þjálfun sem gekk mjög vel. Hann var svei mér ánægður að sjá okkur..”pabba&mömmu”...Sóttum svo Kólgu (ljúflingur sem Beggumágkonufamily á) og skutlast með þau upp á Æsustaði. Allir sáttir þó að fyrstu 2 dagarnir hafi kannski verið erfiðari fyrir Kólgu, svona á nýjum stað með nýjum hestum og svo framvegis. En allt komið í rútínu núna og farið með hana eins og prímadonnuJ
Páskadagur fór í páskaeggjaát og tilheyrandi..setti kalkún í ofninn og bjó til meðlæti, skellti mér í gallann og beint upp í hesthús og riðið út! Svo komu Amma Svava og Diddi í páskamat og Amma Svala hans Krissa líka svo úr varð skemmtileg og matargóð kvöldstundJekki alltaf páskar sko! Kalkúninn heppnaðist líka svona vel og var juicy með meiruJ Klikkar ikke!
Man ekki hvað við gerðum á annan í páskum...haha..jú við fórum í hesthúsið! Ma og pa komu svo heim um kvöldið og við fórum í leynibíltúr með þau að kíkja á Kólgu upp í hesthúsi, pabbi vissi sem sé ekki að við værum búin að sækja skvísuna, en hann ætlar að hafa hana það sem eftir er vors allavega, og ég ætla auðvitað að fá að sjá um hana líkaJ
Vinnan hófst á þriðjudegi og það var yndi að hitta nemendurna aftur og allir hressir, nema ólukkans ælupest að angra marga. Man ekki eftir svona miklum pestarvetri ... ... ...
Svo er bara búið að fylgjast með járningu á Vini, ríða út, skoða jeppa fram og til baka...vorum á því að fá okkur diesel svo sáum við einn svo geðveikan bensín og vorum með einn í láni meira að segja í gærkveldi frá Toyota, þvílík þjónusta þarna hjá þeim að manni er bara treyst fyrir heilum jeppa! Svo bara skila bíl og lyklum..tímdi nú varla að skila honum..250 hestafla 33” breyttur, draumaliturinn minn, silfur með filmum og alle græjer...en svo ákváðum við að halda okkur við upphaflega planið og finna góðan diesel bíl..GX eða VX, LX kemur ekki til greina. Þið sem hafið eitthvað bílavit vitið að ég er að tala um Grand Lúser bílJ Þannig að ef ykkur vantar sárlega mjööög góðan fjölskyldu station bíl sem er eins og nýr, diesel og eyðir nánast engu þá hafið þið samband við mig! Ógeðslega góður bíll sem við tímum varla að selja..en það verður draumur að vera á jeppa..verð að vera eins og hinir í fjölskyldunni..allir komnir á jeppa! (Þarna er efnishyggjan að tala í gegnum mig)J.
Hmm hvað get ég sagt ykkur meira. Jú, í páskafríinu fór ég til gigtarsérfræðings og hann tosaði mig út og suður og ég sagði við hann að þetta hefði hann ekki getað gert við mig kveldinu áður. Því þá t.d. var ég hölt á hnénu. Hann spurði mig..tja ekki spjörunum úr..en svona nánast um allt og meira að segja hvort ég væri með hárlos sem ég er með ..mjög mikið..óttast að vera komin með skalla in a few years! Hann tiltók þrennt sem kæmi til greina en útilokaði samt eiginlega 1 af því...úr mér voru tekin 4 stór glös af rauðu blóði og ég á að hringja á mánudaginn og fá niðurstöður úr þessu öllu saman. Ég er allavega fegin að hafa hlustað á systur mína og drifið mig til hans. Sama hvað úr þessu kemur..gigt eða engin gigt..ef svo leiðinlega vildi til að þetta væri byrjun á liðagigt, sem þetta gæti verið, þá er allavega hægt að taka í taumana strax..hann var ekki sammála heimilislækninum mínum að þetta væru BARA álagsverkir og sagði að ef þetta væru álagsverkir þá þyldi ég mjög lítið álag. En ég hef engar áhyggjur...þannig séð..maður tekur bara því sem koma skal ! Þetta versnar allavega ekki úr þessu, og lagast eiginlega ekki heldur, ég fer á hestbak og það gerir mér gott, hef verið í leikfimi, ekki lagaðist það né versnaði við það..nú fer ég að hjóla í vinnuna hvað úr hverju...set upp hjálminn og bruna af stað! En já..ég bara vona það bestaJ.
Hmm..svo það er bara komið vor og ég og mútta fórum í byen í dag og misstum okkur aðeins í Garðheimum! Ég ætla sem sé að athuga hvort mér takist að sá og rækta: Myntu, Basilíku, Steinselju, Kóríander, gulrætur og Dahlíu...hlakka bara til að sjá hvort þetta lifi hjá mérJ
Nú er líklega meiri en helmingur síðugesta löngu hættur að lesa svo hér set ég punktinn..enda löngu kominn háttatími hjá mér!
Og velkominn heim kæri Hjörtur bjórbumbi – eða er engin? Og nei því miður er ég ekki með neina morgunógleði né brjóstaverki..bara liðverki!En ég get glatt þig með því að vigtin er enn á niðurleið, uuu allavega núna í kvöld sýndi hún nokkur mínus kíló.
Knús á línuna og farið vel með ykkur:) Svaaaa...
Frí frí frí frí frí frí frí.....
Helgin var góð og snerist að miklu leyti um Svövu og Vin:) Fengum lánaða kerru sem hefur alveg bjargað okkur og fórum í tíma hjá reiðkennara hérna í Mosó. Vorum í reiðhöllinni hér og svo í gerði. Þetta er ómetanlegt fyrir mig og ég tel mig læra og læra..Ég skal sko ná góðum tökum á þessu. Hesturinn minn er kannski ekki mikill byrjendahestur en hann er ljúfur þessi elska og ég hef enga trú á öðru en að við verðum orðin gott par eftir veturinn og vorið! Maður má sko aldrei gefast upp! Hann er líka það ungur að við eigum eftir möööörg ár saman svo hann situr uppi með mig:) Hann er bara pínu ákveðnari en ég og vill stjórna..og ég þarf að æfa mig í að vera ákveðnari ! Hafa ekki allir gott af því endrum og eins!
Höður er ennþá fyrir austan, búinn að vera í rúma viku í smá þjálfun. Hann kemur vonandi "heim" núna fyrir eða um páskana. Krissi fer samt austur í nokkra reiðtúra áður en hann kemur svo það er brjálað að gera í þessu! En við viljum líka leggja allt í þetta, því það skiptir sköpum meðan maður er að skólast til.
Morguninn búinn að fara í bókhald, vaktaskipulag og launagreiðslur..tekur aðeins meiri tíma þegar maður er með msn opið og spjallar við vinkonur og mágkonur í leiðinni! En það er nú bara gaman:)
Ég fer svo í einn reiðtíma seinnipartinn í dag og svo smá pása allavega fram yfir páska. Ætla að vera dugleg að gera þessar æfingar sem ég kann með Vini, fá hann til að slaka á og fá mig sjálfa til að slaka á! Svo fer maður í slökunartúr inn á milli, en engin þeysireið meir hjá okkur takk fyrir..tja ekki fyrr en í vor amk!
Svo er það læknisheimsókn á morgun, nú eru komnir 11 mánuðir síðan þessir liðverkir byrjuðu að angra mig og er ekkert lát á, þó ég æfi, fari á hestbak eða hvað...það kemur í ljós..ég vona bara að þetta verði bara í góðu lagi og ekkert mál ! Betra að vera bjartsýnn en svartsýnn! Maður vill bara vera viss og láta tékka á sér, því enginn veit hvenær hann greinist með sjúkdóm það er nokkuð ljóst!
Páskar á næsta leyti og ætlunin er að gera vorhreingerningu í vikunni! Heimilið vissulega búið að sitja á hakanum í þessu hestastússi!
Gleðilega páska!